Previous Page  2 / 4 Next Page
Information
Show Menu
Previous Page 2 / 4 Next Page
Page Background

2

www.beinvernd.is

Sigurður Loftsson formaður Landssamtaka kúabænda afhendir

prófessor Birni Guðbjörnsyni gjafabréf sem stendur fyrir

beinþéttnimælinum.

NÝRSAMSTARFSSAMNINGUR

UNDIRRITAÐUR

Þann 20. október ár hvert halda beinverndarfélög innan

alþjóða beinverndarsamtakanna International Osteoporosis

Foundation IOF upp á alþjóðlegan beinverndardag til að vekja

fólk til vitundar um að beinþynning er heilsufarsvandamál

sem ber að taka alvarlega. Beinvernd er eitt af þessum

beinverndarfélögum.

Í tilefni alþjóðlega beinverndardagsins undirrituðu fulltrúar

frá Beinvernd og Fræðslunefnd mjólkuriðnaðarins,

prófessor Björn Guðbjörnsson og Guðni Ágústsson, nýjan

samstarfssamning til tveggja ára við hátíðlega athöfn á

tilraunastöðinni að Stóra Ármóti í Flóahreppi. Þess má

geta að fyrsti samstarfssamningur sem gerður var á milli

þessar aðila var undirritaður þann 20. október 1999 og hefur

samstarfið verið farsælt. Þessi nýi samningur gerir félaginu

kleift að halda áfram öflugu fræðslu- og forvarnarstarfi.

BEINVERNDFÆRNÝJAN

BEINÞÉTTNIMÆLI AÐ

GJÖF FRÁ ÍSLENSKUM

KÚABÆNDUM

Íslenskir kúabændur afhentu Beinvernd nýjan færanlegan

beinþéttnimæli (ómtæki) að gjöf í tilefni beinverndardagsins

sem áætlað er að nýta í samstarfi við heilsugæsluna í landinu.

Þessi gjöf mun efla til muna forvarnarstarf gegn beinþynningu

á landsvísu því mikilvægt er að greina sjúkdóminn í tíma.

Heilsugæslum landsins hefur nú þegar borist bréf vegna

samstarfs um mælingar og beinverndarfræðslu og hefur

því verið vel tekið. Undirbúningur verkefnisins með nýja

beinþéttnimælinn er því hafinn. Beinvernd kann kúabændum

sínar bestu þakkir fyrir þess höfðinglegu gjöf.

NORRÆNNFUNDUR

BEINVERNDARFÉLAGA

Þann 3. maí sl. var haldinn fundur beinverndarfélaga á

Norðurlöndunum í þriðja sinni. Fyrsti fundurinn var haldinn í

Ósló 2011, annar fundurinn var haldinn í Reykjavík 2012 og sá

þriðji í Helsinki 2013. Á fundinum kynntu fulltrúar félaganna

starfsemi sína, helstu verkefni auk þess að greina frá nýlegum

rannsóknum er tengjast beinþynningu frá sínum löndum.

Judy Stenmark og Laurence Trioulere frá alþjóða beinverndar-

samtökunum sátu fundinn sem áheyrnarfulltrúar til að kynna

sér betur hvernig beinverndarstarfsemi norrænu félaganna

er háttað. Það er afar gagnlegt að skiptast á reynslu og

hugmyndum og vinna saman.

Prófessor Björn Guðbjörnsson formaður Beinverndar og Guðni

Ágústsson formann Samtaka afurðastöðva í mjólkuriðnaði undirrita

samninginn.