• Forsíða
  • Beinvernd
    • Um félagið
    • Persónuvernd
    • Saga / Markmið
    • Stjórn
    • Samstarfsaðilar
    • Minningarkort
    • Aðildarumsókn
  • Beinþynning
    • Greining
    • Meðferð
      • Meðferðarúrræði
      • Bífósfónöt
      • Helstu lyf
      • Estrógen
    • Áhættuþættir
    • Forvarnir
  • Fróðleikur
    • Fréttabréf / Útgáfa
    • Gagnabanki
    • Greinar og pistlar
    • Kalk og D-vítamín
    • Tenglar
    • Gott í gogginn
  • Áhættupróf
  • Beinráður
  • English
 20/05/2025

Stúlkur sem stunda íþróttir eru með sterkari bein.

by Beinvernd / Fimmtudagur, 19 nóvember 2015 / Published in Fréttir, Uncategorized @is
k9

 

Ef stúlkur hefja íþróttaiðkun s.s. fótbolta, handbolta eða körfubolta ungar að aldri hefur það jákvæð áhrif á  styrk beinanna. Sund hefur ekki þessi sömu áhrif. Þetta kom fram í spænskri rannsókn.

Hreyfing er einn mikilvægasti þátturinn í forvörnum gegn beinþynningu en beinþynning eykur hættu á ótímabærum beinbrotum. Beinin þynnast og verða stökkari með aldrinum. Þetta er “þögult” ferli og án einkenna. Bæði kynin eru í hættu á að fá beinþynningu en hún er þó talsvert algengari hjá konum, sérstaklega eftir tíðahvörf. Algengustu brotastaðir eru framhandleggur, hryggjarbolir og mjöðm (lærleggsháls).

Líkamleg þjálfun hefur áhrif á heilbrigði beina, það er vitað. En hvers konar íþróttir eru best til þess fallnar að styrkja beinin? Það er spurningin sem rannsakendur í Háskólanum University of Castilla-La Mancha á Spáni leituðu svara við.

Í úrtakinu voru 200 stúlkur á aldrinum 9 til 13 ára. Þeim var skipt í fimm hópa eftir því hvaða íþróttir þær stunduðu, sund, fótbolta, handbolta, körfubolta auk þess sem það var einn viðmiðunarhópur sem var ekki í neinni sérstakri íþrótt (control group). Hópunum var síðan öllum skipt í tvo undirhópa eftir því hvort stúlkurnar voru orðna kynþroska eður ei.

Framkvæmd voru tvær tegundir prófa á þátttakendum: Tanner próf sem mælir líkamlegan þroska og svo beinþéttnmæling sem einnig mælir samsetningu líkamans (beinþéttni, fita, vöðvamassi).

Það kom í ljós að íþróttir s.s. fótbolti, körfubolti og handbolti hafa sterk áhrif á beinmyndun ef þær eru stundaðar frá unga aldri. Þá þéttast beinin meira en í íþróttum eins og sundi. Ástæðan er talin sú að í sundi vegum við einungis 1/6 af líkamsþyngd okkar og æfingarnar í vatninu eru því gerðar í þyngdarleysi og því minna álag og áreiti á beinin en það hefur áhrif á beinmyndunina.

Það kom einnig fram að tveir tímar á viku í íþróttum í skólanum er ekki nóg til að styrkja og auka beinmassa á unga aldri.

“Niðurstöðurnar sýna að ólíkar íþróttagreinar hafa mismunandi áhrif á beinin og  beinheilsu hjá stúlkum í bernsku.  Þessar upplýsingar geta verið gagnlegar  til að koma í veg fyrir á sjúkdóminn beinþynningu í á fullorðinsárum” segir Esther Ubago Guisado, aðalhöfundum rannsóknarinnar en hún var birt í fagtímaritinu Journal Of Sports Sciences.

Samkvæmt upplýsingum frá IOF alþjóða beinverndarsamtökunum mun  1 af hverjum 3 konum og 1 af hverjum 5 krölum brotna af völdum beinþynningar eftir fimmtugt.

 

Tagged under: beinþéttni, beinþynning, bone density, exercise, forvarninr, hreyfing, iþróttir, osteoporosis, prevention, sports

Beinvernd

Beinvernd eru landssamtök áhugafólks um beinþynningu, jafnt leikra sem lærðra. Samtökin voru stofnuð 12. mars 1997 í Reykjavík. Stjórn Beinverndar skipa átta manns auk tveggja varamanna. Stofnandi Beinverndar er Ólafur Ólafsson, fv. landlæknir, formaður er Anna Björg Jónsdóttir, öldrunarlæknir og verndari félagsins er Ingibjörg Pálmadóttir fv. heilbrigðisráðherra

Fróðleikur

Útgáfa
Greinar / Pistlar Tenglar
Gott í gogginn

Hafðu samband

Netfang: [email protected]
Heimilisfang: Háholt 14
270 Mosfellsbær
Ísland

Beinvernd. Öll réttindi áskilin.

TOP

Beinvernd notar vafrakökur til að bæta upplifun og greina umferð um vefinn.

Ég samþykki Ég synja
Friðhelgisstillingar
Friðhelgisstillingar

Beinvernd notar vafrakökur til að bæta upplifun og greina umferð um vefinn.

Nauðsynlegar vafrakökur Tölfræðilegar vafrakökur Þjónustuborð Persónuvernd Vafrakökustefna
Vafrakökurnar hér að neðan eru nauðsynlegar svo vefurinn starfi eðlilega.

Tæknilegar vafrakökur
Þessar kökur eru hluti af WordPress kerfinu.
  • wordpress_test_cookie
  • wordpress_logged_in_
  • wordpress_sec

GDPR stillingar
Þessi vafrakaka vistar stillingar notandans varðandi samþykki á vafrakökum á beinvernd.net
  • CookieConsent

Þessar vafrakökur safna tölfræðilegum upplýsingum um notkun á vefnum.

Google Analytics
Við söfnum nafnlausum upplýsingum um notkun til að bæta heimasíðuna og þjónustuna.
  • _ga
  • _gid
  • _gat

Hafna öllum vafrakökum
Samþykkja allar vafrakökur