Tennur eru líka bein
Þriðjudagur, 06 janúar 2009
Fyrsta vika febrúarmánaðar er árlega helguð tannvernd. Áhersla er lögð á mikilvægi góðarar tannheilsu og í ár er sérstök áhersla á tannþráðinn og daglega notkun hans undir kjörorðinu Taktu upp þráðinn. Sjá nánar á vef Lýðheilsustöðvar.
- Published in Fréttir
No Comments
Alþjóðleg beinverndarráðstefna í Kína
Þriðjudagur, 06 janúar 2009
Næsta alþjóðlega ráðstefna beinverndarfélaga innan IOF, alþjóða beinverndarsamtakanna, verður haldin í Beijing í Kína dagana 22.-25. september n.k. Á ráðstefnunni verða fyrirlestrar og svokallaðar smiðjur (workshops) þar sem fulltrúar frá 91 beinverndarfélag úr öllum heimsálfum vinna saman að stefnumótun í beinverndarmálum. Á ráðstefnu sem þessari gefst vettvangur samstarfs og skoðanaskipta um allt það er lýtur beinvernd.
- Published in Fréttir
D-vítamínskortur og næringarástand hjá öldruðum sem dvelja á sjúkrahúsi
Þriðjudagur, 06 janúar 2009
Alfons Ramel1, Pálmi V. Jónsson2, Sigurbjörn Björnsson2, Inga Þórsdóttir1 1Rannsóknarstofu í næringarfræði, Landspítala, og matvæla- og næringarfræðideild heilbrigðisvísindasviðs HÍ, 2öldrunarsviði Landspítala og læknadeild HÍ [email protected] Inngangur: Lítil D-vítamínneysla og takmarkað sólarljós er tengt lágum D-vítamínstyrk í blóði (25-hýdroxývítamín D, 25(OH)D). Þess vegna geta aldraðrir Íslendingar haft aukna áhættu á D-vítamínskorti eða lágum D-vítamínbúskap. Tilgangur rannsóknarinnar
- Published in Fréttir
Progress in Osteoporosis
Þriðjudagur, 06 janúar 2009
Nýtt tölublað tímaritsins Progress in Osteoporosis er komið út, vol. 10, issue 2, 2009. Sem fyrr er þar að finna margar fróðlegar greinar um beinþynningu og tengdu efni. Netaðgangur að tímaritinu er frír á vef alþjóðasamtakann IOF.
- Published in Fréttir