Previous Page  2 / 8 Next Page
Information
Show Menu
Previous Page 2 / 8 Next Page
Page Background

2

www.beinvernd.is

Þú heldur nú á Frétta-

bréfi Beinverndar en

það er gefið út árlega

á haustin. Ástæðan er

sú að Beinvernd er aðili

að alheimssamtökum

202 beinverndarfélaga,

International Osteo-

porosis Foundation, og

þann 20. október á ári

hverju halda samtökin

upp á hinn alþjóðlega beinverndardag.

Að þessu sinni er fréttabréfið tileinkað unglingum

og er dreifingu á því þannig háttað að það er sent

í pósti á heimilisfang allra þeirra sem nú eru í 9.

bekk grunnskóla. Á þeim aldri er unga fólkið að

móta mataræði sitt og lífsstíl til framtíðar. Því er

mikilvægt að félag eins og Beinvernd láti í sér

heyra og leggi þannig sitt af mörkum til að auka

líkurnar á því að sem flestir unglingar tileinki sér

heilsusamlegt líferni.

Öll þurfum við sterk bein til að komast í gegnum

lífið og það er ekki síst á unglingsárunum sem

við leggjum grunninn að því hversu sterk beinin

raunverulega verða. Hollt mataræði sem gefur

nægilegt kalk og D-vítamín er nauðsynlegt.

Hreyfing er líka mjög mikilvæg og þá sérstaklega

þungaberandi hreyfing eins og hlaup, hopp

og skopp. Það er því afar ánægjulegt hversu

margir unglingar stunda reglubundna hreyfingu

með þátttöku í kröftugu starfi íþrótta- og

ungmennafélaga landsins.

Hins vegar er óraunhæft að ætlast til þess að

unglingarnir geti séð um þetta alveg sjálfir. Á

þessum aldri er margt sem glepur og nauðsynlegt

að foreldrar axli ábyrgð með því að veita aðstoð

og aðhald. Það hvað til er í ísskápnum skiptir

miklu máli og langar setur við tölvuskjái eða

sjónvarpsgláp er engum hollt.

Foreldrar, unglingar! Ég hvet ykkur eindregið til að

lesa fréttabréfið vel. Í því eru ótal fróðleiksmolar,

fínar uppskriftir og viðtöl við tvo ólympíufara sem

eiga það sameiginlegt að hugsa vel um heilsu sína

og mataræði. Þekking er grundvöllur forvarna

og þar gegnum við öll hlutverki, sjálfum okkur og

öðrum til góða.

Lifið heil.

Eyrún Ólafsdóttir hjúkrunarfræðingur

hallóforeldri!

Endurnýjunbeina

Hallóunglingur!

Þú sem fékkst þetta blað í hendur og ert að skoða það. Það er ástæða

fyrir því að Beinvernd, félag áhugafólks um heilbrigði beina, sendir þér

þetta blað prívat og persónulega. Það er ástæða fyrir því að þetta félag

er að eyða peningum og hafa fyrir því að búa til þetta blað. Fólkið sem

stendur á bak við félagið Beinvernd vill segja þér að þú átt að hugsa

um beinin þín og vernda þau. Ertu kannski að æfa fótbolta, handbolta

eða frjálsar íþróttir? Ef þú stundar einhverjar íþróttir ertu ekki bara að

styrkja vöðvana til þess að verða betri í íþróttinni. Þú ert líka að að efla

beinin sem launa þér allt erfiðið með auknum styrk sem mun gagnast

þér alla ævi.

Beinvernd vill stuðla að því að þið unga fólkið stundið íþróttir og hreyfið

ykkur ekki aðeins ánægjunnar vegna heldur einnig vegna þess gagns

sem þið gerið líkama ykkar. Líkaminn er ekki bara vöðvarnir sem eru

sýnilegir heldur einnig beinin sem bera þá uppi. Án sterkra beina er

flott útlit aðeins fínar umbúðir.

Beinvernd vill líka benda ykkur á nauðsyn þess að borða hollan mat

fyrir beinin. Ekki einblína bara á vöðvana! Þótt beinin séu ekki eins

sýnileg og þeir, þá skapa bein og vöðvar í sameiningu hraustlegt útlit.

Ef þú vilt líta vel út hugar þú einnig að beinunum og sérð til þess að

þau fái það sem þau þurfa. Kalkrík fæða svo sem mjólkurvörur, dökkt

grænt blaðgrænmeti og D-vítamín, sem við fáum úr lýsi, er allur

galdurinn, og beinin launa þér ríkulega í íþróttunum og í lífinu sjálfu!

Þetta eru skilaboðin sem Beinvernd vill koma til þín. Efnið í blaðinu

fjallar að meira og minna leyti um þetta tvennt, hreyfingu og mataræði.

Ef þú gefur þér tíma til þess að lesa það, íhuga innihaldið, leggja það

á minnið og tileinka þér það nærðu árangri sem skilar sér langt inn í

framtíðina.

Gangi þér vel.

Beinvernd

Pósthólf 161, 270 Mosfellsbær

Sími: 897 3119

[email protected]

www.beinvernd.is

Viltu gerast félagi?

Þeir sem hafa áhuga á að gerast félagar í Beinvernd geta haft

samband við Halldóru Björnsdóttur, framkvæmdastjóra félagsins,

í síma eða sent tölvupóst. Allir eru hjartanlega velkomnir.

1.

Beinbrjótar (osteoclasts)

setjast á yfirborð beinanna.

2.

Beinbrjótar éta sig niður í

beinið.

3.

Beinbyggjar (osteoblasts)

búa til nýtt bein.

4.

Niðurbrotið og nýmyndunin í

beininu eru jafn mikil.

1.

4.

2.

3.