Previous Page  10 / 16 Next Page
Information
Show Menu
Previous Page 10 / 16 Next Page
Page Background

10

Matvælastofnun Sameinuðu þjóðanna hvetur

til þess að haldið sé upp á alþjóðlegan

skólamjólkurdag og er ástæðan ekki síst sú

að minna á mikilvægi og hollustu mjólkur og

mjólkurvara fyrir þroska og viðhald beina hjá

börnum og unglingum.

Ákveðin aldursskeið virðast sérstaklega

mikilvæg með tilliti til vaxtar og þroska beina.

Frá fæðingu til tveggja ára aldurs á mikill vöxtur

sér stað. Einnig taka beinin mikinn vaxtarkipp

á unglingsárum, um 11 til 14 ára aldurinn

hjá stúlkum og 13 til 17 ára hjá drengjum. Á

þessum árum er því mjög mikilvægt að huga

vel að þeim þáttum sem hafa jákvæð áhrif á

beinin svo sem góðri næringu.

Einn fæðuflokkur öðrum fremur er einstak-

lega ríkur í kalki. Hér er að sjálfsögðu

átt við mjólkurflokkinn sem jafnframt er

Skólamjólkin leggur grunn að

sterkum beinum

auðugur af fleiri mikilvægum beinmyndandi

næringarefnum svo sem próteinum, fosfór,

kalíum, magnesíum og sinki. Börn sem neyta

ekki mjólkur eiga oft í erfiðleikum með að

neyta nægilegs kalks og í ljós hefur komið að

„beinheilsa“ barna sem neyta ekki mjólkur er

almennt lélegri en þeirra sem hennar neyta

og þau eru einnig lágvaxnari. Að sjálfsögðu

getur fólk nálgast nægilegt kalk þó það neyti

ekki mjólkur eða mjólkurafurða en staðreyndin

er sú að það krefst gjarnan meiri vinnu og

næringarþekkingar.

Samkvæmt niðurstöðum kannanna á mataræði

barna og unglinga hér á landi hefur m.a. komið

í ljós að kalkneysla flestra íslenskra barna og

unglinga er rífleg. En því miður hefur einnig

komið fram að sér í lagi neyta margar stelpur á

unglingsaldri minna en ráðlagður dagskammtur

af kalki segir til um og er ástæðan ekki

síst sú að ungar stúlkur draga gjarnan úr

mjólkurneyslu á unglingsárum. Ráðlagður

dagskammtur af kalki á dag er 1000 mg fyrir

unglinga og sem dæmi má nefna að í hálfum

lítra af mjólk eru hátt í 600 mg af kalki.

Lengi býr að fyrstu gerð og þar sem vel nærður

líkami elur af sér sterk bein felst besta forvörnin

í því að temja sér góðar neysluvenjur frá fyrstu

tíð og mjólk í skólanestið hefur sitt að segja

fyrir beinin.

Ólafur G. Sæmundsson næringarfræðingur

Ráðlagður dagskammtur af

kalki á dag er 1000 mg fyrir

unglinga og sem dæmi má

nefna að í hálfum lítra af

mjólk eru hátt í 600 mg af

kalki.

Fróðleikur:

Forvarnir

Það sem þú getur gert!

1. Borðaðu hollan og kalkríkan

mat (800–1500 mg á dag er

ráðlagt).

2. Gættu að því að fá nægilegt

D-vítamín, t.d. með því að

taka lýsi daglega

(10–15 μg)

.

3. Hreyfðu þig reglulega, helst á

hverjum degi í 30–60 mínútur.

Ekki sitja lengi í senn!

4. Byltuvarnir: Í þeim felst m.a.

góður skóbúnaður, góð lýsing

innan dyra, að forðast lausar

snúrur og mottur og gæta að

hálku, bæði innan dyra og

utan (á blautu gólfi og þegar

ísing er utandyra).

5. Forðastu

reykingar

og neyttu

áfengis í

hófi.

6. Hafðu

samband

við Beinvernd.

7. Sæktu um aðild að félaginu.

Í ljós hefur komið að

„beinheilsa“ barna sem

neyta ekki mjólkur er

almennt lélegri en þeirra

sem hennar neyta og þau

eru einnig lágvaxnari.

Vissir þú ...

... að konur sem fara

snemma í tíðahvörf

eða hafa gengist

undir legnám eru í

aukinni hættu á að fá

beinþynningu