Previous Page  13 / 16 Next Page
Information
Show Menu
Previous Page 13 / 16 Next Page
Page Background

www.beinvernd.is

13

Ítölsk ýsa með

hreinni jógúrt

Fyrir 4-6

1-1,2 kg ýsa

heilhveiti

olía til steikingar

100 g rauðlaukur (saxaður)

50 g sólþurrkaðir tómatar

(saxaðir)

500 ml hrein jógúrt

2 msk. pestó

1 glas fetaostur

20 stk. blandaðar ólífur

Aðferð:

Veltið ýsubitum upp úr heilhveiti

og brúnið í olíu á pönnu. Setjið

ýsubita í eldfast mót. Stráið

yfir söxuðum rauðlauk og

sólþurrkuðum tómötum.

Blandið saman jógúrt og pestó

og hellið yfir fiskinn og setjið að

lokum fetaostinn og ólífurnar

yfir. Bakið í ofni við 180 °C í c.a.

20-30 mín.

Berið fram með salati og

tómötum.

• Góð lýsing skiptir miklu máli. Hafa næturljós.

• Nota stamar mottur í sturtu- og baðkarsbotna.

• Setja handföng við baðkar og sturtu.

• Setja gúmmídúk undir laus teppi á gólfum og mottur,

eða fjarlægja þær.

• Nota veggfestingar fyrir rafmagnssnúrur.

• Nota stöðuga tröppu við verk eins og að skipta um

peru, þvo glugga og þess háttar.

• Staðsetja síma miðsvæðis eða nota þráðlausan síma.

• Hafa eldhúshluti sem eru í daglegri notkun í vinnuhæð.

• Fjarlægja þröskulda.

• Hafa handrið við útitröppur og innitröppur.

• Lagfæra trosnuð og slitin teppi, sérstaklega í stigum.

• Setja hálkustrimla fremst á hálar innitröppur.

• Geyma sand í fötu við útidyrnar yfir vetrartímann og

dreifa sandinum yfir þrepin áður en gengið er niður.

• Nota mannbrodda í snjó og hálku.

Nokkur góð ráð til að minnka hættuna

á byltum og brotum hjá öldruðum

Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin WHO í

samvinnu við alþjóðlegu beinverndarsamtökin

IOF og vísindamenn við Sheffield-háskólann

í Bretlandi hafa opnað sérstaka vefsíðu

– FRAX® – með áhættureikni fyrir 10 ára

brotaáhættu. FRAX byggir á staðtölum frá níu

löndum í Evrópu, Asíu og í Bandaríkjunum.

Þetta er einfalt reiknilíkan sem samþættir

klínískar upplýsingar og beinþéttnigildi og spáir

fyrir um líkur þess að einstaklingur beinbrotni

af völdum beinþynningar á næstu 10 árum.

Meginmarkmið lækna sem meðhöndla

sjúklinga með beinþynningu er að draga úr

líkum á beinbrotum af hennar völdum með

sem árangursríkustum hætti. Ákvarðanir um

meðferð verða að byggja á góðu klínísku

áhættumati og viðurkenndri aðferð við það að

skilgreina eða finna þá einstaklinga sem eru í

mestri áhættu.

Miklar væntingar eru til þessa nýja áhættu-

mats, en það er talið mikilvægt skref til að

auðvelda heilbrigðisstarfsfólki um allan heim

að greina þá sem eru í mestri hættu á að

brotna og veita þeim sem besta meðferð.

Greiningin verður mun einfaldari en áður hefur

þekkst auk þess sem áhættumatið tryggir betur

árangur meðferðar og getur þannig fækkað

beinbrotum af völdum beinþynningar og dregið

úr sálfélagslegum og efnahagslegum kostnaði

sem hlýst vegna afleiðinga sjúkdómsins.

Íslenskir vísindamenn undir forustu

prófessors Gunnars Sigurðssonar eru að

vinna sambærilegt reiknilíkan sem byggir á

íslenskum staðtölum.

Nýtt áhættumat FRAX®

Fróðleikur:

Fengið úr bæklingi Landsbjargar

Örugg efri ár