Previous Page  10 / 16 Next Page
Information
Show Menu
Previous Page 10 / 16 Next Page
Page Background

10

Hvað

hentar

börnum

best að

drekka?

Börn og ungmenni á Íslandi drekka

of mikið af sykruðum gos- og svala-

drykkjum. Níu ára börn drekka að

meðaltali 2,5 lítra af gos- og svala-

drykkjum á viku og 15 ára börn tæp-

lega 4 lítra á viku samkvæmt rann-

sókn Ingu Þórsdóttur og félaga hjá

Rannsóknarstofu í næringarfræði á

Landspítalanum.

Tíðni ofþyngdar og offitu meðal

barna og unglinga hefur aukist á

undanförnum árum auk þess sem

glerungseyðing tanna er vaxandi

vandi

samkvæmt

niðurstöðum

Munnísrannsóknar. Mikil neysla gos-

drykkja og annarra svaladrykkja að

meðtöldum íþrótta- og orkudrykkjum

og jafnvel safa hefur verið tengd við

þetta. Því er mikilvægt að foreldrar

og aðrir fullorðnir, staldri við og hug-

leiði hvað hentar best að gefa börn-

um að drekka.

Vatn er langbesti svala-

drykkurinn fyrir börn

Kalt vatn hentar börnum best til að

svala þorsta. Kennum börnunum að

drekka vatn við sem flest tækifæri.

Aðgengi skiptir hér meginmáli. Reyn-

um að hafa það sem reglu að auðvelt

sé fyrir börnin að fá sér vatn, hvort

sem er með máltíðum eða á milli mál-

tíða. Til viðbótar við kranavatnið er

sykurlaust kolsýrt vatn án ávaxtasýru

(E330) góður valkostur.

Tveir til þrír skammtar af

mjólk eða mjólkurvörum

á dag

Fullorðnum og börnum frá eins árs

aldri er ráðlagt að neyta tveggja

glasa, diska eða dósa af mjólk eða

mjólkurmat á dag eða þess sem sam-

svarar hálfum lítra yfir daginn. Best

er að velja fitulitlar og lítið sykraðar

vörur nema fyrir tveggja ára börn

og yngri sem þurfa heldur fitumeiri

vörur. Ostur getur að hluta til komið í

staðinn fyrir aðrar mjólkurvörur.

Hreinn ávaxtasafi er ekki

nauðsynlegur hluti af hollu

mataræði

Fullorðnum og börnum er ráðlagt að

borða 5 skammta af grænmeti og

ávöxtum á dag. Eitt glas af hreinum

ávaxtasafa getur komið í staðinn fyrir

einn skammt af ávöxtum á dag. Ekki

er ráðlagt að börn drekki meira en

sem svarar einu glasi á dag og yngri

börn ættu aðeins að fá lítið glas.

Hreinn ávaxtasafi er þó ekki nauðsyn-

legur hluti af hollu mataræði en er þó

betri kostur en gos- og svaladrykkir.

Gos- og svaladrykkir ein-

ungis til hátíðabrigða

Gos- og svaladrykkir eru óþarfi

fyrir börn og veita einungis tómar

hitaeiningar því í sykruðum gos- og

svaladrykkjum eru margar hitaein-

ingar í formi viðbætts sykurs en

nær engin næringarefni. Mikil sykur-

neysla í formi gos- og svaladrykkja

getur aukið líkur á ofþyngd og offitu

meðal barna auk þess sem sykurinn

skemmir tennurnar. Gos- og svala-

drykkir innihalda auk þess ávaxtasýr-

ur og rotvarnarsýrur sem geta leyst

upp glerung tannanna. Að drekka

gos- og svaladrykki, að meðtöldum

íþrótta- og orkudrykkjum oftar en

þrisvar sinnum í viku

eykur hættu á gler-

ungseyðingu.

Elva Gísladóttir verkefnis-

stjóri næringar hjá Lýðheilsu-

stöð

Meðferð og

meðhöndlun

Hérlendiseruskráð fjölmörg lyf gegnbein-

þynningu, en lyfjameðferð getur dregið

úr tíðni samfallsbrota um 30–70% hjá

konum eftir tíðahvörf.

Sambærilegan árangur er að finna hjá

körlum. Með þessari lyfjameðferð ætti

ætíð að taka kalk og D-vítamín. Lyfjaval

ætti alltaf að ræða við lækni. Eftirtaldar

lyfjameðferðir hafa sýnt árangur í með-

ferð vegna samfallsbrota:

Alendronate (Fosamax®og Fosavance® í töflum)

Desosumab (Prolia® stungulyf)

Ibandronate (Bonviva® í töflum eða sprautum)

Paratyroid hormone (Forsteo® stungulyf)

Raloxifene (Evista® töflur)

Risedronate (Optinate® í töflum)

Strontium ranelate (Protelos®, mixtúrukyrni)

Zolendronate (Aclasta® til inngjafar í æð)

Auk beinverndunarlyfja (sjá hér að ofan)

þarf einnig að huga að:

Verkjalyfjameðferð

Hvíld ef verkir eru miklir, en fólk sem

verður fyrir samfallsbroti ætti þó að

reyna að hreyfa sig sem fyrst og vera

á fótum

Styrkjandi æfingar fyrir kviðvöðva

Sjúkraþjálfun – réttstöðuæfingar,

styrktaræfingar, jafnvægisæfingar

og byltuvarnir, vatnsleikfimi

Sjá nánar greinar ummeðferð og helstu

lyf á vefsíðu Beinverndar:

www.beinvernd.is

Flest

samfallsbrot

eru fylgikvilli

lágrar beinþéttni

eða beinþynn-

ingar.

Framgangur samfallsbrota.