7
www.beinvernd.is
Mexíkófiskur
með nachos
og salsa
Fyrir 4
Hráefni:
800 g ýsa eða þorskur
300 g nachos-flögur
50 g blaðlaukur
1 eða 2 paprikur
3 dl salsasósa
125 g rjómaostur með hvítlauk
Salt og nýmalaður svartur pipar
Aðferð:
Smyrjið eldfast mót með smjöri.
Setjið nachos-flögur í formið og rað-
ið fiskinum í bitum ofan á. Kryddið
með salti og pipar. Skerið græn-
metið fínt niður og stráið yfir. Setjið
salsasósuna yfir ásamt rjómaost-
inum. Bakið við 175°C í 25 mínútur.
Borið fram með salati með avókadó-
bitum
50% kvenna
sem náð hafa
áttræðisaldri hafa
fengið samfalls-
brot í hrygg.
Oftast er
hvorki tekið eftir
litlum samfallsbrotum
né eru þau skráð í
sjúkraskrá sjúklinganna
og það veldur því að
brotin eru ekki með-
höndluð.
Hleðsla er íþróttadrykkur sem inniheldur
prótein og kolvetni til hleðslu og hentar
t.d. vel eftir æfingar. Drykkurinn inni-
heldur eingöngu mysuprótein en þau eru
talin allra próteina hentugust til vöðva-
uppbyggingar. Í einni dós eru 22g af
mysupróteinum. Kolvetnamagni er stillt
í hóf, en í stað sykurs og sætuefna er
notaður agavesafi. Hleðsla inniheldur
ennfremur mjög litla fitu.
Fyrir hverja er
Hleðsla?
Hleðsla hentar öllum sem
eru í íþróttum eða stunda
aðra hreyfingu. Hleðsla
hentar einnig vel þeim sem
leita eftir próteinríkum og
fitulitlum millimáltíðum. Einnig
eru líkur á að drykkurinn henti
öldruðum vel, þar sem my-
suprótein eru talin geta mögu-
lega aukið vöðvastyrk, t.d. hjá
þeim semþjást af vöðvarýrnun.
Hvernig virka
mysuprótein?
Mysupróteinin í Hleðslu koma ein-
göngu úr íslenskri mjólk. Mysuprót-
ein eru bæði auðmeltanleg og með
hentuga amínósýrusamsetningu.
Sérstaða mysupróteina felst meðal
annars í að þau innihalda sérstaklega
mikið af greinóttum amínósýrum sem
geta nýst til orkugjafar í vöðvum. Þau
innihalda einnig mikið af amínósýru-
num arginíni og lýsíni, sem mögulega
örva losun vaxtarhormóns (GH) og
örva þannig aukningu í vöðvamassa
og minnkun fitumassa. Amínósýran
glútamín er í nokkru magni í mysuprót-
einum, en hún hjálpar við að fylla
glýkógenbirgðir eftir æfingu og
kemur í veg fyrir mögulega
veikingu ónæmiskerfisins
vegna ofþjálfunar.
Hleðsla
íþrótta-
drykkur
Hvað gera kolvetnin í
Hleðslu?
Kolvetni eru mikilvægasti orkugjafi líkam-
ans og eru geymd í líkamanum í formi
glýkógens sem er forðabúr fyrir kolvetni
og er m.a. að finna í vöðvum og lifur. Til
marks um mikilvægi kolvetna sem orku-
gjafa má benda á að heilinn nýtir aðeins
kolvetni sem orkugjafa, en ekki prótein
eða fitu.
Hleðsla hefur vakið athygli
utan landsteinanna
Öfugt við flesta aðra drykki með háuprót-
eininnihaldi á markaði er Hleðsla sýrður
drykkur. Þrátt fyrir hið háa próteininnihald
þykir Hleðsla afskaplega bragðgóður
drykkur og má það að nokkru leyti rekja
til mysupróteinþykknisins
sem hefur mun betri
bragðeiginleika
en
þurrkað mjólkur- og
mysuprót-einduft sem
yfirleitt er notað í sam-
bærilegar vörur. Enda
hefur Hleðsla hlotið mjög
góðar viðtökur hjá neyt-
endum. Hleðsla hefur
ennfremur vakið talsverða
athygli erlendis, en mjólk-
urframleiðendur í Evrópu
og ýmsir dreifingaraðilar
hafa sýnt mikinn áhuga á að
koma þessari vöru inn á sína
markaði.
Rannsóknir á Hleðslu
Sem fyrr segir eru líkur á að drykkurinn
henti öldruðum sérstaklega vel, þar sem
mysuprótein eru talin geta aukið vöðva-
styrk, t.d. hjá þeim sem þjást af vöðv-
arýrnun (e. sarcopenia). Til að byggja
undir þessar tilgátur hefur stór íslensk
rannsókn verið í gangi undanfarin 2 ár á
vegum Rannsóknastofu í næringarfræði
við HÍ og LSH og öldrunarsviðs LSH. Þar
hafa áhrif mysupróteindrykkjar frá MS á
vöðvarýrnun aldraðra verið til skoðunar.
Sá drykkur er sérhannaður fyrir verkefnið
og nokkurs konar forveri Hleðslu sem
var enn í þróun þegar rannsókn
þessi hófst. Er niðurstaðna að
vænta úr þessari rannsókn
fljótlega.